Bókabrall er samstarfsverkefni bókasafns- og upplýsingafræðingar í gunnskólum Hafnarfjarðar og verður haldið í skólum bæjarins þann 12.- 16. maí.

Þemað í ár eru vættir og varmenni. Útbúnar voru þrautir sem tengjast bókmenntum fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Hver aldurshópur spreytir sig á fimm til sex þrautum og er aldursskiptingin eftirfarandi: 1. og 2. bekkur, 3.-5. bekkur og 6.-7. bekkur.
Gul spjöld verða fyrir 1.-2. bekk, rauð spjöld fyrir 3.-5. bekk og græn spjöld fyrir 6.-7. bekk. Nemendur vinna saman í litlum hópum, 3ja -4 manna. Hver hópur nálgast svarblað á sínu skólasafni og skilar því svo þangað aftur þegar búið er að leysa þrautirnar.
Dregið verður úr réttum svörum og verðlaunin eru skemmtitími á safninu, tímasetning valin í samráði við umsjónarkennara.