Ástundun

Nám og kennsla

Ástundun

Góð skólasókn er ein mikilvægasta forsenda náms, félagslegrar þátttöku og vellíðanar barna. Markmið Hafnarfjarðarbæjar er að styðja við reglubundna skólasókn allra nemenda með snemmtækri íhlutun, virku samstarfi heimilis og skóla og samræmdum viðbrögðum við ófullnægjandi skólasókn. Fylgt er landsviðmiðum Mennta- og barnamálaráðuneytisins um skráningu skólasóknar og viðbrögð við fjarvistum.

 

Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn byggja á samræmdum landsviðmiðum Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Viðbrögð eru stigvaxandi og miða að snemmtækri íhlutun, auknum stuðningi og samstarfi heimilis og skóla áður en vandi verður alvarlegur.

Skólasókn

Skólinn fylgist reglulega með skólasókn nemenda með samræmdum viðverukóðum og fjarvistarstigum. Markmið skráningarinnar er að greina snemmbær merki um vanda í skólasókn og tryggja viðeigandi stuðning.

Fjarvistir og seinkoma

  • Seinkoma innan 5 mínútna frá upphafi kennslustundar telst ekki til fjarvistarstiga. Seinkoma eftir að skráningu er lokað en áður en 20 mínútur eru liðnar gefur 1 fjarvistarstig. Mæti nemandi ekki innan 20 mínútna telst það óheimil fjarvist og gefur 2 fjarvistarstig.

Leyfi og veikindi

  • Veikindi, samþykkt leyfi og aðrar heimilar fjarvistir eru skráðar sérstaklega samkvæmt samræmdum viðverukóðum. Óheimilar fjarvistir eru skráðar sérstaklega og geta kallað fram viðbrögð samkvæmt verklagi skólans.
  • Mikilvægt er að tilkynna veikinda nemenda að morgni, líka þegar veikindi vara lengur en einn dag.
  • Leyfi í 2 daga eða minna er hægt að tilkynna með tölvupósti eða hringja í skólann.
    Leyfi í þrjá skóladaga eða lengur skulu ávallt sótt um skriflega. Skólastjóri metur umsókn á grundvelli gildandi laga, aðalnámskrár og reglna sveitarfélagsins. Skólinn getur hafnað umsókn um leyfi ef ástæður teljast ekki nægjanlegar eða ef leyfið er talið hafa neikvæð áhrif á nám og skólasókn nemandans.

    form á vef skólans. 

Fjarvistarstig og skólasókn

Fjarvistarstig eru notuð til að fylgjast með skólasókn nemenda og greina snemma hvort þörf sé á stuðningi.

Stigagjöf

0 stig

  • Mættur í tíma.
  • Seinkoma innan 5 mínútna.
  • Samþykkt leyfi.
  • Samþykkt nám utan skóla.
  • Skert stundaskrá eða aðrar samþykktar undanþágur.

1 stig

  • Seinkoma meira en 5 mínútur en minna en 20 mínútur.
  • Veikindi.
  • Heilbrigðistengd erindi (læknir, sálfræðingur o.fl.).
  • Leyfi vegna persónulegra aðstæðna.

2 stig

  • Óheimil fjarvera úr kennslustund.
  • Nemandi mætir ekki eða mætir eftir að 20 mínútur eru liðnar af kennslustund.
  • Leyfi án samþykkis skóla.