Breyting á skóladagatali

Gerð hefur verið sú breyting á skóladagatali Engidalsskóla fyrir skólaárið 2024-2025 að starfsdagur sem átti að vera fimmtudaginn 19. september hefur verið færður fram til föstudagsins 13. septembers. Ástæðan er að mjög margir kennarar eru að fara norður til Akureyrar á læsisráðstefnu sem haldin er í Háskólanum á Akureyri 13. og 14. september. Í fréttabréfi í vor var þetta nefnt en breytingin þurfti að fara í gegnum bæði skólaráð og fræðsluráð sem nú hafa bæði lagt blessun sína á þessa breytingu.