Nám og kennsla

Meginhlutverk náms- og starfsráðgjafa er að vinna með nemendum, forsjáraðilum, kennurum, skólastjórnendum og starfsfólki skólans að málefnum sem styrkja nemendur.

Náms- og starfsráðgjöf miðar að því að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, svo sem viðhorfum, áhuga, hæfileikum, getu og væntingum. Náms- og starfsráðgjafi vinnur líka ýmsa teymisvinnu með öðrum í stoðþjónustu skólans, til dæmis umsjónarkennurum, sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, starfsfólki Dalsins og Álfakots. Einnig er unnið með Félagsþjónustu Hafnarfjarðar, Brúarinnar, BUGL og Þroska- og hegðunarstöð. Sú vinna felst helst í ýmsu velferðarstarfi varðandi nám, líðan og framtíðaráform nemenda.

Í Engidalsskóla starfar einn námsráðgjafi í hálfu starfi. Hægt er að hringja á skrifstofu skólans og panta viðtalstíma eða senda tölvupóst á dagnys(hjá)@engidalsskoli.is. 

Verkefni námsráðgjafa

  • Einstaklingsmiðuð ráðgjöf.
  • Ráðgjöf við náms- og starfsval.
  • Hópráðgjöf.

Námsráðgjafi vinnur í samstarfi við foreldra eftir því sem við á og foreldrar geta einnig leitað beint til námsráðgjafa.

Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda, með þeirri undantekningu sem kveðið er á um í 17. gr. laga um barnavernd.