Skólaslitin þetta árið verða með öðrum hætti en verið hefur. Skólaslit fyrir allan skólann verða föstudaginn 6. júní kl. 16 og ætti öllu að vera lokið fyrir kl. 17.

Ef veður leyfir stefnum við á að vera með þau úti. Líkt og áður munu nemendur vera með samsöng og nokkrir nemendur spila á hljóðfæri. Skólastjóri mun segja nokkur orð. Nemendur í 7. bekk verða útskrifaðir og yngri nemendur fá afhentan vitnisburð. Jón Jónsson mun svo loka þessum vetri með nokkrum lögum. Við vonumst auðvitað til að sjá sem flesta.