Skólaslit 6. og 7. júní

Skólaslit í Engidalsskóla verða 6. og 7. júní nk. Athöfnin verður þrískipt og eru foreldrar/forsjáraðilar velkominn með nemendum. Skólastjóri verður með stutt ávarp, tónlistaratriði í flutningi nemenda og afhending vitnisburðar. Nemendur í 1.-3. bekk munu syngja lag sem þau hafa valið með kennaranum sínum undir stjórn Önnu tónmenntakennara, áður en vitnisburður verður afhentur. Við lítum á þetta sem einn af hátíðisdögum skólaársins og hvetjum nemendur til að mæta prúðbúna á skólaslitin.

6. júní

7. bekkur kl. 17:00

7. júní

1.-3. bekkur kl. 9:00

4.-6. bekkur kl. 10:00

Aðrir viðburðir

Skoða skóladagatal