Stuðningur

Nám og kennsla

Brúin

Í skólanum er sérstakt brúarteymi þar sem unnið er í sameiningu til að auka farsæld barna og fjölskyldna þeirra. Í teyminu situr fagfólk á vegum skólans, ásamt ráðgjöfum frá fjölskyldu- og barnamálasviði og mennta- og lýðheilsusvið. Brúarteymið kortleggur stöðu barnsins og leitar sameiginlegra lausna til að styðja við barnið og fjölskyldu.

Farsæld barna

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Öll börn undir 18 ára aldri, og fjölskyldur þeirra, eiga að hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf er á.

Hlutverk tengiliðar er:

  • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
  • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
  • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

Þegar barn er  við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

  • Tengiliðir farsældar í Engidalsskóla eru:

Erla Björk Pálsdóttir deildarstjóri yngsta stigs [email protected]

Íris Anna Randversdóttir deildarstjóri stoðþjónustu [email protected]

Margrét Halldórsdóttir skólastjóri [email protected]

 

Nemendaverndarráð

Hlutverk nemendaverndarráðs er að taka við öllum erindum, bæði frá starfsfólki og foreldrum, um stuðningsþjónustu skólans og koma þeim í farveg sem leiðir til lausna á þeim.

Foreldrar sem telja að barn þeirra þurfi á stuðningi að halda geta haft samband við umsjónarkennara barns eða deildarstjóra stoðþjónustu, Írisi Önnu Randversdóttur. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins. Ráðið heldur fundi vikulega.

Í nemendaverndarráði sitja:

  • skólastjóri
  • námsráðgjafi
  • deildarstjórar stiga
  • deildarstjóri stoðþjónustu
  • deildarstjóri frístundar

Umsjónarkennarar og aðrir eru boðaðir til fundar eftir þörfum. Ráðið er bundið þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum atvikum sem ber að tilkynna samkvæmt lögum.

Heilsugæsla

  • Skólahjúkrunarfræðingur: Herdís Lína Halddórsdóttir
  • [email protected]
  • Viðverutími
  • Þriðjudaga 08:30–12:30
  • Miðvikudaga 08:30–12:30
  • Fimmtudaga 08:30–14:00

Heilsuvernd skólabarna í Engidalsskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Firði. Heilsuverndin er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi.

Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Helstu áherslur í heilsuvernd nemenda eru:
  • Fræðsla, forvarnir og heilsuefling.
  • Bólusetningar.
  • Skimanir.
  • Viðtöl um heilsu og líðan.

Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna. Sjá nánar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Heilbrigðisfræðsla

Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna og gefst þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi.

Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá nánar á Heilsuveru.

  • 1. bekkur

    „Líkaminn minn“ – forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og hjálmanotkun.

  • 2. bekkur

    Tilfinningar.

  • 3. bekkur

    Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld).

  • 4. bekkur

    Kvíði og slysavarnir.

  • 5. bekkur

    Samskipti.

  • 6. bekkur

     Kynþroski og endurlífgun.

  • 7. bekkur

    Bólusetningar.

  • 8. bekkur

    Sjálfsmynd og samskipti, hugrekki og endurlífgun.

  • 9. bekkur

    Kynheilbrigði og bólusetning.

  • 10. bekkur

    Geðheilbrigði, endurlífgun og ábyrgð á eigin heilsu.

Skimanir

Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er haft samband við forsjáraðila.

Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan

Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur er gripið til úrræða.

Bólusetningar

Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (1 sprauta) og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV-bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).

Fyrir bólusetningu fá foreldrar tölvupóst með upplýsingum um tímasetningu. Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.

Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:

  • talið er að barn sé ekki að fullu bólusett
  • óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett
  • nánari upplýsinga er óskað

Sjá meira um bólusetningar

Veikindi og slys

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.

Langveik börn

Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan eða alvarlegan sjúkdóm, til dæmis sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans.

Lyfjagjafir

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma.

Höfuðlús

Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit.

Stoðþjónusta

Í Engidalsskóla er áhersla á að mæta nemendum á þeirra forsendum í skólastarfinu án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis. Leitað er allra leiða til þess að nemendur geti stundað nám við hæfi í skólanum. Fyrirkomulag kennslu í skólanum er almennt kennsla í fámennari námshópum. Í þeim er hægt að koma til móts við nemendur sem þurfa aukna eða sértæka aðstoð í námi. 

Stuðningur er ýmist veittur innan eða utan bekkjar. Stuðningur er annað hvort veittur einum nemanda í einu eða nemendahóp. Stuðningsúrræði eru fjölbreytt og er þeim sinnt af þroskaþjálfa, kennara eða skóla- og frístundaliðum.  

Ef vikið er verulega frá námsáætlun árgangsins er einstaklingsáætlun unnin í samvinnu við foreldra sem er metin reglulega. Samstarf við foreldra er mikilvægt og veita kennarar foreldrum og skóla- og frístundaliðum ráðgjöf við val á námsefni og þjálfun.

Nemendum er forgangsraðað í stuðningsþjónustu eftir stöðu þeirra í námi og öðrum forsendum.Tekið er mið af greiningargögnum ef til eru. Forgangsröðun er endurskoðuð á hverri önn og oftar ef þörf er á.

Sálfræðiþjónusta

Sálfræðingur skólans er Bára Fanney Hálfdánardóttir. Sálfræðingur skólans sinnir greiningu, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf en ekki meðferð. Tilvísanir til sálfræðings berast í gegnum nemendaverndarráð eða brúarteymi grunnskólans. Samþykki foreldra verður alltaf að liggja fyrir. Tilefni beiðna geta verið margvísleg en áhersla er lögð á snemmtækt mat og greiningu á stöðu nemanda vegna náms, hegðunar og sálrænna erfiðleika.

Talmeinaþjónusta

Börn sem glíma við frávik í máli eða tali eiga rétt á greiningu talmeinafræðings ásamt sérkennslu og stuðningi við nám í grunnskóla. Talmeinafræðingur veitir einnig ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla. Foreldrar geta óskað eftir greiningu og ráðgjöf talmeinafræðings, í öllum tilvikum þarf skriflegt samþykki foreldra að liggja fyrir áður en greining fer fram.