Í sumar sendi ráðuneytið út landsviðmið um skólasókn grunnskólanema. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. Veturinn í vetur verður notaður til að skoða hvort sníða þurfi einhverja annmarka af þeim en þetta verður svo gefið út sem reglugerð. Það eru töluverðar breytingar í þessum landsviðmiðum en gefin verða fjarvistastig fyrir veikindi og heimiluð leyfi ólíkt því sem verið hefur. Við hvetjum foreldra til að kynna sér þetta vel en farið verður að vinna eftir þessu í skólanum frá og með 1. október 2026.

Samræmdir viðverukóðar

Mæting 0 fjarverustig

Seinkoma 0-5 mín 0 fjarverustig

Seinkoma 5-20 mín 1 fjarverustig

Fjarvera úr kennslustund (óheimil) 2 fjarverustig

Fjarvera heill dagur (óheimil) 10 fjarverustig (föst tala)

Heilir dagar

Fjarvera (heimiluð, veikindi) 1 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, persónulegrar ástæðna) 1 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, keppnis- eða sýningaferða) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, sjúkrakennsla, langtímaveikindi) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, skert stundaskrá) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, félagsstarf í skóla) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, farandvinna foreldris) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, trúarleg iðkun) 0 fjarverustig

 

Fjarvera (heimiluð, tímabundin brottvísun) 0 fjarverustig