Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026 sýna að nemendum í Engidalsskóla líður almennt vel og að margt stendur sterkt í skólasamfélaginu okkar. Langflestum nemendum líkar vel í skólanum, þeir eiga góða vini og upplifa góða líðan bæði í kennslustundum og frímínútum. Einnig telja flestir nemendur mikilvægt að leggja sig fram í námi og þátttaka í íþróttum er mjög góð. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að nemendur njóta almennt góðs stuðnings frá fjölskyldum sínum, eiga auðvelt með að leita sér aðstoðar heima fyrir og gera reglulega skemmtilega hluti með foreldrum sínum. Þá eru vísbendingar um sterk félagsleg tengsl, góða lífsánægju og öflugt skólasamfélag þar sem flestum nemendum líður vel. Eins og alltaf gefa niðurstöðurnar okkur einnig tækifæri til að halda áfram að þróa og efla skólastarfið. Við viljum styrkja enn frekar tengsl nemenda við fullorðna í skólanum, hlusta á raddir þeirra og auka þátttöku þeirra í skólasamfélaginu. Þá munum við áfram leggja áherslu á vellíðan nemenda, jákvæð samskipti og að hver og einn nemandi upplifi að hann tilheyri og hafi rödd sem skiptir máli. Við erum stolt af þeim góða árangri sem kemur fram í niðurstöðunum og þökkum nemendum, starfsfólki og foreldrum fyrir þeirra framlag. Saman höldum við áfram að byggja upp skólasamfélag þar sem ábyrgð, virðing og vellíðan eru leiðarljós í öllu starfi. Skýrsluna í heild má finna undir skólinn –> mat á skólastarfi. Deila Tísta