Undanfarnar vikur hafa nemendur í Engidalsskóla fengið fræðslu um stafræna velferð frá Önnu Laufey Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð. Markmið fræðslunnar var að efla vitund nemenda um áhrif skjánotkunar og stafræns umhverfis á daglegt líf, samskipti og vellíðan, auk þess að stuðla að heilbrigðum stafrænum venjum. Með fréttinni fylgja myndir sem Anna Laufey Stefánsdóttir tók saman fyrir foreldra. Heimilisreglur Samantekt fyrir foreldra á yngsta stigi Samantekt fyrir foreldra á miðstigi Við þökkum Önnu Laufey kærlega fyrir fræðandi og gagnlega heimsókn. Deila Tísta