Drög að starfsáætlun Engidalsskóla fyrir komandi skólaár hafa nú verið birt á heimasíðu skólans undir Nám og kennsla. Starfsáætlunin hefur verið yfirfarin og staðfest í skólaráði og bíður nú afgreiðslu hjá fræðsluráði. Verði gerðar breytingar á áætluninni í kjölfar þeirrar umfjöllunar verður hún uppfærð og endurbirt á heimasíðunni. Við hvetjum foreldra og aðra áhugasama til að kynna sér innihald starfsáætlunarinnar, sem endurspeglar áherslur skólans og markmið fyrir komandi skólaár. Deila Tísta