Eitt af umbótaverkefnum skólans á þessu skólaári er að efla samskipti við foreldra og veita enn betri upplýsingar um það sem fram fer í skólastarfinu. Markmið okkar er að auka gagnsæi og gera foreldrum auðveldara að fylgjast með námi og framförum barna sinna. Nú eru allar kennsluáætlanir aðgengilegar á heimasíðu skólans undir hnappnum Nám og kennsla. Þar geta foreldrar og nemendur kynnt sér efni einstakra námsgreina og fengið góða yfirsýn yfir það sem unnið er að hverju sinni. Í vetur höfum við einnig skipt skólaárinu upp í fjórar námslotur. Í kennsluáætlunum hverrar lotu má finna: Hæfniviðmið – lýsa þeirri hæfni sem nemendur eiga að hafa tileinkað sér. Námsmarkmið – sýna hvað nemendur eiga að læra og geta gert í lok lotunnar. Lykilhugtök – mikilvæg hugtök sem unnið er með á tímabilinu. Jafnframt verður námsmat birt með markvissari hætti yfir skólaárið. Fyrstu námslotunni lýkur 23. október næstkomandi, og í kjölfarið verða niðurstöður námsmats aðgengilegar í íþróttum og öllum bóklegum greinum. Í list- og verkgreinum er kennslan skipulögð í hringekjur og því mun námsmat birtast jafnóðum og nemendur ljúka viðkomandi smiðjum. Við hvetjum foreldra til að kynna sér kennsluáætlanirnar og fylgjast reglulega með námsmati barna sinna. Með auknu upplýsingaflæði og góðu samstarfi heimilis og skóla styðjum við sem best við nám og velferð nemenda. Deila Tísta