Í morgun var brunaæfing í skólanum og náðum við að tæma skólann á innan við þremur mínútum.

Á hverju hausti er haldin brunaæfing og farið yfir það sem betur má fara hverju sinni. Erfiðast er að tæma nýrri bygginguna þar sem nemendur þurfa að fara niður brunastiga. Okkur gekk mun betur í ár en fyrra skólinn var tómur á innan við þremur mínútum og allir komnir á sinn stað og búið að ganga úr skugga um að allir væru komnir út á fjórum mínútum og 38 sekúndum.