Við viljum færa öllum þeim sem tóku þátt í hraðstefnumóti Engidalsskóla í gær okkar bestu þakkir fyrir frábæra þátttöku og góð samtöl. Á fundinum áttu foreldrar og starfsfólk gefandi umræður um nám og kennslu og ekki síst það sem mestu máli skiptir, velferð skólabarna í Engidalsskóla.

Unnið verður úr niðurstöðum fundarins á næstu dögum, en við fyrstu yfirferð komu skýrt fram þau áhersluatriði sem skólasamfélagið vill leggja sérstaka rækt við:

  • Að byggja upp seiglu hjá nemendum
  • Að efla félagsfærni og stuðla að góðri vináttu
  • Að auka námstækni og læsi

Dásamleg og notaleg stund við grillið eftir stefnumótið, þar sem foreldrar, börn og starfsfólk komu saman, setti punktinn yfir i-ið á þessum vel heppnaða viðburði.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna. Framlag ykkar er ómetanlegt og verður mikilvægur grunnur að áframhaldandi starfi skólans.

Við ætlum að gera þetta saman.