Nýjar niðurstöður úr nemendakönnun Skólapúlsins (6. og 7. bekkur) gefa tilefni til ánægju í Engidalsskóla. Nemendur skólans sýna á fjölmörgum sviðum jákvæða útkomu sem er yfir landsmeðaltali og staðfesta að í skólanum ríkir góður skólaandi, vellíðan og traust námsumhverfi.

Sérstaklega vekur athygli að nemendur mælast yfir landsmeðaltali í vellíðan, sjálfsáliti og trú á eigin námsgetu. Nemendur telja sig geta tekist á við verkefni, hafa trú á eigin hæfni og líður almennt vel í skólanum. Einnig mælist samband nemenda og kennara sterkt og nemendur upplifa að kennarar sýni þeim áhuga, hlusti á sjónarmið þeirra og veiti stuðning þegar á þarf að halda.

Á námslegum þáttum kemur fram að áhugi á náttúrufræði er umtalsvert meiri en að jafnaði á landsvísu og ánægja af lestri mælist einnig yfir meðaltali. Þá hafa nemendur góða trú á eigin vinnubrögðum og námsgetu, sem eru mikilvægir þættir í farsælu námi.

Niðurstöðurnar sýna jafnframt að agi í tímum og virk þátttaka nemenda eru yfir landsmeðaltali. Það bendir til þess að lærdómsmenning skólans sé sterk og að nemendur taki virkan þátt í skólastarfinu.

Þá er ánægjulegt að sjá að tíðni eineltis mælist lægri en landsmeðaltal. Um 9,8% nemenda segjast hafa orðið fyrir einelti síðustu 30 daga samanborið við 18% á landsvísu. Þó að alltaf sé hægt að gera betur í þessum mikilvæga málaflokki sýna niðurstöðurnar að markviss vinna við jákvæð samskipti og velferð skilar árangri.

Ein athyglisverðasta niðurstaðan snýr að snjallsímum. Hlutfall nemenda sem eru með síma með sér á skólatíma er mun lægra en á landsvísu og símanotkun á skólatíma mælist einnig minni en að jafnaði. Þessar niðurstöður endurspegla áherslur skólans á einbeitingu, samskipti og virka þátttöku í námi og leik.

Við í Engidalsskóla erum stolt af þessum niðurstöðum og þökkum nemendum, starfsfólki og foreldrum fyrir gott samstarf. Niðurstöðurnar hvetja okkur áfram til að byggja upp öflugt, öruggt og jákvætt skólasamfélag þar sem öllum líður vel og fá tækifæri til að dafna.