Síðasta haust gerðum við tilraun til að hefja samstarfið með svokölluðum líðanfundum. Þar komu saman foreldrar, umsjónarkennarar og skólastjórnandi. Þessir fundir koma í stað hinna hefðbundu haustfunda. Fundirnir byrja á stuttu innleggi skólastjóra á sal en svo fara foreldrar með umsjónarkennurum og einum skólastjórnanda í bekkjarstofur þar sem foreldrar ræða barnahópinn í heild og deila líðan sinna barna. Þessir fundir hafa mælst mjög vel fyrir í þeim skólum þar sem þeir eru hefð. Mikilvægt er að það mæti allavega einn frá hverjum nemanda. Fundirnir hefjast sem hér segir á sal skólans: 17. september kl. 17:30 – 1. – 2. bekkkur 19. september kl. 17:30 – 3. og 4. bekkur 19. september kl. 19:30 – miðstig Deila Tísta