Föstudaginn 20. september verður Olympíuhlaup ÍSÍ hlaupið í Engidalsskóla. Hlaupið fer fram á Víðistaðartúni og far nemendur þangað í fylgd starfsmanna skólans. Við hvetjum alla til að mæta í klæðnaði sem auðvelt er að hreyfa sig og huga sérstaklega að skófatnaði. Nemendur Engidalsskóla hafa alltaf staðið sig vel í hlaupinu og eigum við von á að svo verði einnig í ár.

Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Nemendur hafa hingað til getað valið á milli þriggja vegalengda þ.e. 2,5 km, 5 og 10 km, en nú geta skólarnir ákveðið þessar vegalengdir sjálfir allt eftir því hvað umhverfi skólanna býður upp á. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá fjölda þeirra sem hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt.