Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á skólaslitin. Að okkar mati tókst viðburðurinn afar vel og var ánægjulegt að sjá hversu margir mættu og tóku þátt í þessum mikilvæga áfanga. Athygli er vakin á því að skrifstofan verður lokuð næstu þrjá daga vegna námsferðar starfsmanna. Á meðan verður þó hægt að nálgast óskilamuni í anddyri skólans. Deila Tísta