Skólasetning Engidalsskóla verður þriðjudaginn 25. ágúst.  Sú hefð hefur skapast að setja skólann með rafrænni kveðju frá skólastjóra og því ekki um hefðbunda samkomu á sal.

Þennan dag mæta allir nemendur ásamt foreldrum sínum í samtal hjá umsjónarkennara. Nemendur þurfa, í samráði við foreldra sína, að hafa sett sér markmið fyrir komandi skólaár, bæði námsleg og félagsleg. Markmiðin verða rædd í samtalinu og lögð áhersla á farsælt upphaf skólaársins.

Foreldrar munu fá tölvupóst frá umsjónarkennurum með upplýsingum um fundartíma hvers og eins.

Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst síðan miðvikudaginn 26. ágúst. Við vekjum athygli á að skóladagatal skólaársins er að finna hér á heimasíðunni.

Við hlökkum til að taka á móti nemendum og foreldrum og hefja nýtt skólaár með jákvæðum og markvissum hætti.