Við bjóðum nemendur, foreldra og starfsfólk hjartanlega velkomin á skólaslit sem fara fram 9. júní kl. 16:30.

Dagskráin verður hátíðleg og fjölbreytt. Skólastjóri flytur stutt ávarp og nemendur sjá um skemmtilegan tónlistarflutning. Saman syngjum við lagið „Nú er kátt um borg og bæ“ og Páll Óskar mun einnig leggja sitt af mörkum með söng, meðal annars laginu „Eitt af blómunum“.

Við munum útskrifa 7. bekk og aðrir nemendur fá afhentan sinn vitnisburð fyrir skólaárið.

Við hlökkum til að ljúka skólaárinu saman í gleði og góðum anda.