Niðurstöður starfsánægjukönnunar Skólapúlsins fyrir árið 2026 liggja nú fyrir og það er okkur mikið fagnaðarefni að deila þeim með skólasamfélaginu. Heildarmyndin sem blasir við okkur er einstaklega jákvæð og sýnir að Engidalsskóli er á hraðri siglingu upp á við. Frá árinu 2022 hefur skólinn tekið stórstígum framförum í flestum lykilþáttum og mælist nú marktækt yfir landsmeðaltali á mörgum mikilvægum sviðum. Einn af helstu styrkleikum skólans er faglegur stuðningur skólastjórnenda við kennara. Þar mælist Engidalsskóli með 7,6 stig á meðan landsmeðaltalið er 5,1. Þessi mikli munur, sem nemur 2,5 stigum. Stjórnendur okkar eru sýnilegir og virkir í skólastarfinu; tæp 70% kennara segja að stjórnendur ræði reglulega markmið námsins á fundum og jafnframt fylgjast þeir markvisst með kennslu í kennslustofum. Annar lykilþáttur sem einkennir Engidalsskóla árið 2026 er framúrskarandi starfsánægja. Kennarahópurinn okkar sýnir ótrúlegan eldmóð, en ánægja með kennarastarfið mælist nú 6,8 stig, sem er langt yfir landsmeðaltali (5,3). Það sem meira er, þá sýna niðurstöðurnar að 100% kennara skólans eru sáttir í starfi sínu. Þessi mikla vellíðan starfsfólks er undirstaðan að öllu gæðastarfi; þegar kennurum líður vel og upplifa stuðning, skilar það sér beint í betri skólabrag og öflugra nám fyrir börnin. Þrátt fyrir þessa glæsilegu stöðu í stjórnun og starfsanda, erum við alltaf opin fyrir tækifærum til að gera enn betur. Við sjáum fram undan spennandi verkefni við að innleiða enn fjölbreyttari kennsluhætti og efla einstaklingsmiðað nám. Eins stefnum við að því að styrkja enn frekar samstarf okkar og upplýsingamiðlun til foreldra. Í því verkefni viljum við eiga samtal við foreldra/forsjáraðila og verður í haust blásið til fjölmennrar vinnustofu. Með þann sterka grunn sem við höfum byggt upp í stjórnun og starfsmannahópi, erum við í kjörstöðu til að takast á við þessar áskoranir af krafti. Við erum á gríðarlega áhugaverðri umbótaferð. Sú jákvæða þróun sem hefur átt sér stað á síðustu árum gefur okkur fullt tilefni til bjartsýni. Við erum stolt af okkar frábæra starfsfólki og hlökkum til að halda áfram að þróa Engidalsskóla sem framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað þar sem menntun og vellíðan fara saman. Saman höldum við áfram að gera góðan skóla enn betri! Deila Tísta