Laugardaginn 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og bjóða börnunum að skoða tómstundamöguleikana sem eru í boði í bænum. Þetta er fyrsta Frístundamessa Hafnarfjarðar. Hún er haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu milli kl. 10-14. Alls starfa 38 íþróttafélög í Hafnarfirði. Innan þeirra er hægt að finna fjöldann allan af íþróttagreinum. Mörg þeirra verða á frístundamessunni. Brúarsmiðirnir verða á svæðinu til að tryggja að fólk með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn geti einnig tekið þátt. Við hvetjum ykkur öll til að koma og skoða og sjá hvort innan um allan fjölda félaganna leynist einmitt eitt sem hentar þínu barni best. Nánari upplýsingar: hfj.is/fristundamessa Deila Tísta