Foreldrafélag og starfsmenn Engidalsskóla bjóða foreldrum á stuttan og snarpan stefnumótunarfund, eins konar „hraðstefnumót“, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00 í Engidalsskóla. Á fundinum, sem tekur um 50-60 mínútur, ætlum við að velta fyrir okkur hvað það er í skólastarfinu sem við viljum leggja mesta áherslu á og velta því fyrir okkur hvernig við komumst þangað. Boðið verður upp á barnapössun og leiki fyrir börn fundargesta á meðan fundurinn stendur yfir. Að fundi loknum mun foreldrafélagið grilla pylsur fyrir alla, þannig að fjölskyldur geta átt notalega samverustund áður en haldið er heim. Við reiknum með að allir geti verið komnir heim um kl. 18:30, saddir og sælir. Við hlökkum til að sjá sem flesta og vinna saman að því að gera gott skólastarf enn betra. Deila Tísta